Bistro kvarnirnar frá Peugeot eru nettar, grípandi og fáanlegar í alla vega litum. Hægt er að para kvarnirnar saman eftir lit, hafa dökka fyrir pipar og ljósa fyrir salt. Hvað sem þér dettur í hug!
Bistro piparkvörnin er úr beykivið og henni haldið náttúrulegri. Til að stilla grófleika er hægt að þétta eða leysa efstu kúluna á kvörninni. Athugið að piparblöndur með misþurrum pipar geta stíflað kvörnina og er þá hægt að tæma hana og þrífa.