Þessi stórsniðuga svunta er í raun stór útgáfa af Kitchen diskaþurrkunni með hönkum eftir kantinum endilöngum. Þú vefur henni utan um þig og dregur svo hornið á svuntunni í hankann sem hentar til að festa. Þannig er hægt að sníða hana að hvaða mitti sem er.
The Organic Company er danskt hönnunarfyrirtæki sem hefur gæði að leiðarljósi og umhverfið í forgangi. Vörurnar eru úr GOTS vottaðri lífrænni bómull og framleiddar á ábyrgan hátt á Indlandi.