Birta táknar stöðuga birtu sumarsins. Ilmurinn er léttur, sætur og örlítið púðurkenndur. Hann vekur minningar úr bernsku um heyskap og saklausar sólkysstar kinnar.
Ilmurinn samanstendur af hlýjum viðartónum, rafi og ferskum blómum.
Fljótandi sápurnar frá Urð eru gerðar úr 97% náttúrulegum innihaldsefnum og eru vegan. Þær innihalda íslenska repjuolóu til að mýkja húðina og ilm unninn út frá árstíðunum fjórum.