Þara sjampóstykkið er kaldpressað og er notað með því að nudda sápunni í blautan hársvörðinn eða á milli handanna.
Innhaldsefni: kókosolía, vatn, repjuolía, laxerolía, þari og náttúrulegar olíur (e. pure essential oils). Piparmynta og patsjúlí.
Steinasápurnar frá Urð eru handgerðar. Þær innihalda hreinar ilmolíur og íslensk hráefni. Lögun þeirra minnir á brotna hrafntinnu og er táknræn fyrir hina viðkvæmu íslensku náttúru. Hrafntinnan er friðuð og stundum nefnd steinn sannleikans. Sápurnar eru í taupokum sem hægt er að nota ef ferðast er með þær. Sápurnar eru með áföstum spotta til að auðvelda notkun.