upphengi Aveny, látún

15.840 kr.

Á lager

Vörumerki

Beslag Design

Efniviður

Látún

Litur

Gyllt

Stærð

60 CM

Lýsing

Aveny upphengið frá Beslag Design er bæði fallegt og gagnlegt. Hægt er að hengja það upp á vegg fyrir eldhúsáhöld, pottaleppa og diskaþurrkur. Þá er einnig hægt að festa stöngina við eyjuna í eldhúsinu ef veggplássið er af skornum skammti!

Látúnsupphengið er úr gegnheilu og ómeðhöndluðu látúni sem veðrast og dekkist fallega með tímanum. Hægt er að koma í veg fyrir það með því að pússa/fægja látúnið annað slagið. Þá er einnig hægt að stytta stöngina auðveldlega eða jafnvel lengja hana með framlengingu.

Í settinu er 60 cm löng stöng, tvær festingar (með viðarskrúfum) og fimm krókar. Hægt er að kaupa auka króka. Burðargetan er allt að 5 kg.

Frekari upplýsingar
Vörumerki

Beslag Design

Efniviður

Látún

Litur

Gyllt

Stærð

60 CM

Sendingamöguleikar

Þú getur fengið pöntun þína afhenta með þeirri leið sem hentar þér og þínum þörfum best.

SENDINGAMÁTI

  • Sótt í Kokku – Laugavegi 47, þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín er tilbúin. + 0 kr.
  • Sending á pósthús – 2-4 virkir dagar, frítt þegar pantað er fyrir meira en 15.000 kr. + 750 kr.
  • Sending í póstbox – 2-4 virkir dagar, vinsamlegast skráðu staðsetningu fyrir póstbox í sendist til reitinn í næstu valmynd, frítt þegar pantað er fyrir meira en 10.000 kr. + 750 kr.
  • Sent heim með Póstinum – í þéttbýli, vanalega 2-4 virkir dagar, frítt þegar pantað er fyrir meira en 15.000 kr. + 950 kr.
  • International – We can ship almost anywhere in the world, we will contact you with shipping cost and payment options once your order is placed.

NÝLEGA SKOÐAÐAR VÖRUR

Skráðu þig inn

Ertu ekki með aðgang?

Við notum vafrakökur (cookies) til að bæta upplifun þína.  Með notkun á kokkuvefnum samþykkir þú vafrakökurnar.
Byrjaðu að skrifa til að finna þær vörur sem þú ert að leita eftir
Verslun
0 Óskalistinn minn
0 items Karfa
Mínar síður