Hurricane Reflections nr 69 kertaglösin frá Ro Collection eru innblásin af antík steinolíulömpunum með löngum sívalningi sem umlykur kertalogann. Það sem gerir Reflections glösin frábrugðin hinum hefðbundnu Hurricane eru línurnar í glerinu. Þær eru fengnar með því að blása glerið upp í viðarmóti. Kertaglösin lýsa upp notalegu stundirnar og varpa fallegri birtu, hvort sem það er innandyra eða utandyra. Þar sem Reflections kertaglösin eru rúm að innan getur kertaloginn brunnið niður jafnt og þétt, bæði úti og inni. Kertaglösin er munnblásin úr mjög léttu gleri, með þeirri aðferð gætu litlar loftbólur myndast og litur hvers Reflections kertaglass verið missterkur.
Reflections kertaglösin fást í mörgum stærðum, fyrir bæði kubbakerti og teljós. Það er einnig hægt að nota kertaglösin sem vasa fyrir afskorin blóm eða sem bauk undir áhöld eða skriffæri.
Hönnun: Rebecca Uth.