Mystery brettaolían er blanda af náttúrulegum olíum sem var þróuð til að næra og viðhalda viðarbrettum. Er þá einnig hægt að bera hana á aðra olíuborna viðarfleti eins og vinnu-og matarborð.
Með því að bera John Boos olíuna reglulega á viðinn kemur þú í veg fyrir að hann þorni eða klofni. Gott er að bera olíuna á bretti einu sinni í mánuði og leyfa brettinu að standa yfir nótt á meðan olían smýgur inn í viðinn. Þetta getur þurft að gera oftar þegar bretti er nýtt eða í mjög þurru umhverfi.
Til þess að verja viðinn enn betur er hægt að bera Boos Blocks brettavaxið á brettið á eftir olíunni og láta það standa á brettinu yfir nótt líkt og með olíuna.
Olían hefur hlotið vottun frá matvælastofnum Bandaríkjanna og er örugg á fleti sem snerta matvæli.