Það getur reynst vel að hafa auka batterí fyrir þráðlausa töfrasprota sem eru í mikilli notkun.
Þráðlausi töfrasprotinn er nýjung frá Bamix sem veitir þér fordæmalausan sveigjanleika í eldhúsinu. Sprotinn er vatnsþéttur upp að gráu línunni og í honum eru tvær hraðastillingar, annars vegar 8000 rpm (snúningar á mínútu) og hins vegar 14000 rpm. Í PRO sprotanum er einnig svoköllið „booster“ stilling en með því að ýta á báða takkana nær hann upp í 15500 rpm. Rafhlaðan heldur hleðslu í allt að 20 mínútur og er hægt að beita sprotanum samfleytt í allt að 3 mínútur. Fjögur lítil ljós gefa til kynna hve mikil hleðsla er eftir í sprotanum eftir notkun.
Með töfrasprotanum má jafna, hakka, þeyta, hræra, mauka og mala grænmeti, ávexti, kjöt, ís og ýmsa vökva.
Þráðlausa töfrasprotanum fylgja: hleðslustöð fyrir sprotann, hnífur, skífa og hræra. Þráðlausi PRO sprotinn er einnig lengri en aðrir sprotar frá Bamix.