
djúp panna Affinity, með loki
58.900 kr.
Ekki til á lager
Affinity vörurnar frá deBuyer eru með fimm lög af ryðfríu stáli og áli (stál-ál-stál-ál-stál) til að tryggja góða hitaleiðni. Kosturinn við marglaga pönnur er að hitinn dreifist jafnt og þétt upp með brúnum pottsins – ekki einungis í botninum. Djúpa pannan hentar vel í að steikja kjöt-og grænmeti og að láta rétti malla.
Eyrun á pönnunni eru úr steyptu ryðfríu stáli sem þægilegt er að halda um. Brúnin á pönnunni er hönnuð til þess að auðvelt sé að hella úr henni. Djúpa 28 cm pannan rúmar 5 lítra og henni fylgir stállok.
Það má setja djúpu Affinity pönnuna í uppþvottavél og gengur hún enn fremur á öll helluborð – einnig á spanhellum. Hitaleiðni pönnunnar er gríðarlega góð og er því mælt er með að hita hana jafnt og þétt í stað þess að setja hitann strax í botn.
| Vörumerki |
deBuyer |
|---|---|
| Efniviður |
Ál ,Stál |
| Litur |
Stál |
| Stærð |
5 L ,Ø 28 CM |
