Með hamborgarapressunni frá Lékué er hægt að útbúa þétta borgara og jafnframt borgara með fyllingu. Ef þú vilt gera borgara með fyllingu þarftu aðeins að hálffylla silikonmótið, snúa pressunni við og stimpla út lítið hólf fyrir fyllinguna, t.a.m. ost eða spínat. Að því loknu seturðu meira af hakkinu ofan á og pressar.
Silikonmótinu er hægt að skella í uppþvottavélina en mælt er með að þvo plastpressuna sjálfa upp í höndunum.