Choc Intense pönnurnar frá DeBuyer eru með endingargóðri og viðloðunarfrírri keramikhúð. Pönnurnar henta vel fyrir fisk, egg, grænmeti, baunir, kornmeti og annan viðkvæman mat. Þær henta einnig mjög vel til að hita upp tilbúna rétti eða þykkja sósur án þess að hafa áhrif á bragð og lit.
Pannan sjálf er steypt úr 4 mm þykku áli sem gefur jafna og góða hitadreifingu. Botnplatan er úr ryðfríu stáli (AISI 430) svo þær henta vel á flestar spanhellur. Pannan er húðuð að innan og utan með svartri eiturefnalausri keramikhúð (án PFOA/PFOS).
Handfang á pönnurnar er selt sér en hægt er að nota sama handfangið á allar stærðir af Choc Intense pönnum. Handfangið er hægt að skoða hér.
Varist að hita pönnuna tóma eða of mikið, forðist einnig snöggar hitabreytingar og notkun stáláhalda.
Þvoðið pönnuna í höndum með svampi eða bursta sem rispar ekki.
Choc Intense pönnurnar má nota á allar gerðir eldavéla, þ.m.t. á span og í ofni (að hámarki 10 mínútur við 230°C). Sé pannan notuð á spanhellu er gott að hafa í huga að nota hellu sem er jafnstór og botn pönnunnar, hækka hitann smám saman og freistast ekki til að nota aflaukann (booster) þar sem hann skapar of mikinn hita á afmörkuðu svæði.
Pönnurnar koma í fjölnota poka og umhverfisvænum umbúðum.