Inocuivre koparsósupotturinn frá deBuyer er sjálfur 90% kopar og svo umlykur 10% ryðfrítt stál innanmál pottsins. Kopar leiðir hita einstaklega vel og er því mjög góður í matseld. Ryðfrítt stál krefst minna viðhalds og þolir meira álag en kopar og er þetta því kjörin blanda fyrir alla kokka.
Skaftið er rúnnað og úr steyptu ryðfríu stáli sem hitnar ekki út frá pottinum. Vaska þarf pottinn upp í höndum og bera koparhreinsi utan á pottinn eftir þörfum.
Ø20 cm sósupotturinn rúmar 1,7 lítra.
Ø24 cm sósupotturinn rúmar 3,1 lítra.
ATH. Inocuivre koparpottarnir ganga ekki á span.