Blóðbergs steinasápan er nærandi líkamssápa með villtu blóðbergi og hreinum ilmolíum. Sápan er kaldpressuð og framleidd i höndunum.
Innihaldsefni: kókosolía, vatn, repjuolía, shea hnetusmjör, villt blóðberg og náttúrulegar olíur (e. pure essential oils). Greip og bergamót.
Steinasápurnar frá Urð eru handgerðar. Þær innihalda hreinar ilmolíur og íslensk hráefni. Lögun þeirra minnir á brotna hrafntinnu og er táknræn fyrir hina viðkvæmu íslensku náttúru. Hrafntinnan er friðuð og stundum nefnd steinn sannleikans. Sápurnar eru í taupokum sem hægt er að nota ef ferðast er með þær. Sápurnar eru með áföstum spotta til að auðvelda notkun.