Latneska heiti litlu uglunnar er Athene noctua og er snúið höfuðið eitt af einkennum hennar. Pappírs uglan er ekki stór, en hún krefst einbeitingar og þarf að gefa sér góðan tíma í samsetningu hennar. Pappírsdýrin frá Plego koma í sléttu umslagi sem vegur aðeins 130 grömm og eru því tilvalin í gjafir sem þarf að senda.
Í umslaginu eru 6 litaðar pappírs-og bómullar arkir sem upplitast síður af ljósi. Þá er einnig að finna skemmtilega örk með helstu upplýsingum um ugluna og að lokum leiðbeiningar. Það er nú þegar búið að klippa partana úr örkinni og er hver partur merktur svo auðvelt sé að samanbrjóta og festa þá saman. Athugið að það þarf svolítið hvítt, fljótandi lím og ef til vill tannstöngla til að ná öllum fuglinum saman.
Erfiðleikastig samsetningarinnar er fjórir af sex og eiga 12 ára og eldri að eiga auðvelt með föndrið.