stálpanna Carbone Plus m/eyrum, margar stærðir
9.900 kr. – 16.900 kr.Price range: 9.900 kr. through 16.900 kr.
Carbone Plus stálpönnurnar eru úr 3 mm þykku karbonstáli sem þarf að steikja til fyrir notkun. Við mælum sérstaklega með því að líta yfir bloggfærsluna að steikja til pönnu til að sjá hinar ólíku aðferðir steikingarinnar.
Markmiðið er í raun að safna náttúrulegri húð á hráan efniviðinn sem gerir pönnuna viðloðunarfría með tímanum. Það er gott að hafa í huga að þeim mun svartari og ljótari sem pannan er, þeim mun betri er hún.
Lögun eyrna-Carbone Plus pönnunnar henta vel í rétti á borð við paellur. Pönnurnar ganga á öll helluborð og þær má einnig nota í ofni. Við mælum með því að hita carbone stál pönnur rólega, sérstaklega á spanhelluborði, til að koma í veg fyrir vindingu. Einnig að velja hellu sem er nærri stærð pönnunar.
Carbone Plus stálpönnurnar frá deBuyer mega ekki fara í uppþvottavél og þær eru ekki ryðfríar.
Botnmálið á Ø28 cm pönnunni er Ø17,5 cm.
Botnmálið á Ø32 cm pönnunni er Ø20 cm.
Botnmálið á Ø36 cm pönnunni er Ø23 cm.
Botnmálið á Ø40 cm pönnunni er Ø30 cm.
| Vörumerki |
deBuyer |
|---|---|
| Efniviður |
Karbonstál |
| Litur |
Stál |
| Stærð |
Ø 28 CM ,Ø 32 CM ,Ø 36 CM ,Ø 40 CM |


