Carbone Plus stálpönnurnar eru úr 3 mm þykku karbonstáli sem þarf að steikja til fyrir notkun. Við mælum sérstaklega með því að líta yfir bloggfærsluna að steikja til pönnu til að sjá hinar ólíku aðferðir steikingarinnar.
Markmiðið er í raun að safna náttúrulegri húð á hráan efniviðinn sem gerir pönnuna viðloðunarfría með tímanum. Það er gott að hafa í huga að þeim mun svartari og ljótari sem pannan er, þeim mun betri er hún.