bökunarplata m. grind
9.500 kr. – 13.900 kr.Price range: 9.500 kr. through 13.900 kr.
Þessi bökunarplata frá USA Pan er ca. 2,5 cm á dýpt svo engin hætta sé á leka. Þá eru einnig litlar rákir í botni plötunnar sem tryggir loftun á meðan á bakstri stendur. Þessari plötu fylgir grind sem smellpassar í bökunarplötuna. Grindina má nota sem bæði kæligrind eða til að leyfa t.d. súkkulaði að leka af tertu.
USA Pan vörurnar eru úr stáli og húðaðar með svokallaðri Americoat® húð sem er úr ál-og sílikonblöndu og gerir vörurnar viðloðunarfríar. Bökunarplatan þolir allt að 230° hita og má ekki setja í uppþvottavél. Það er einnig mælt með að nota aðeins viðar-, nælon-og sílikonáhöld í stað stáls sem gæti rispað plötuna.
| Vörumerki |
USA Pan |
|---|---|
| Efniviður |
Stál |
| Litur |
Stál |
| Stærð |
36 x 24 CM ,43 x 31 CM ,51 x 36 CM |



