Paysanne pönnurnar frá deBuyer henta í alls kyns eldamennsku, hvort sem það er fyrir snöggsteikingu eða sósur og annað mall. Pönnurnar eru djúpar og með háum brúnum sem koma í veg fyrir að fita eða sósa slettist.
Pönnurnar eru úr 2 mm þykku blástáli (þ.e. þunnu járni) sem þarf að steikja til fyrir notkun. Við mælum sérstaklega með því að líta yfir bloggfærsluna að steikja til pönnu til að sjá hinar ólíku aðferðir steikingarinnar. Markmiðið er í raun að safna náttúrulegri húð á hráan efniviðinn sem gerir pönnuna viðloðunarfría með tímanum. Það er gott að hafa í huga að þeim mun svartari og ljótari sem pannan er, þeim mun betri er hún.
Ø20 cm pannan er 39,5 cm á lengd og rúmar 1,7 lítra.
Ø24 cm pannan er 46,5 cm á lengd og rúmar 2,5 lítra.
Ø28 cm pannan er 51,5 cm á lengd og rúmar 4 lítra.
Ø32 cm pannan er 66,5 cm á lengd og rúmar 5,5 lítra.