Þessi wokpanna frá Lodge er í einstaklingsstærð sem einnig er tilvalin til að bera á borð. Hægt er að borða beint upp úr pönnunni eða skella henni inn í ofn og elda í henni meðlæti. Það er ekki skilyrði að nota pönnuna í asíska matargerð!
Hafirðu áhuga á frekari fróðleik og upplýsingum um steyptar járnpönnur mælum við með þessari bloggfærslu okkar.