picknickteppi Random Rug

15.900 kr.

Á lager

Random Rug teppin frá Tweedmill eru búin til úr endurunni ull. Því eru engin tvö teppi eins og öll þeirra einstök á sinn hátt. Það kemur þér því skemmtilega á óvart þegar þú festir kaup á Random Rug. Það er að sjálfsögðu hægt að koma í Kokku og sjá hverju er úr að velja.

Botn teppsins er vatnheldur og er teppið því hið fullkomna ferðateppi hvernig sem úti viðrar. Hvort sem þú ert að fara í rólega lautarferð úti í garði eða vilt koma þér vel fyrir í grasinu á útihátíð er Random Rug endurunna teppið frábær kostur!

Teppið er samþjappanlegt og kemst því auðveldlega fyrir ofan í tösku, en það eru einnig handföng svo hægt er að bera það á milli staða. Teppið má setja í þvottavél.

Vörumerki

Tweedmill

Efniviður

Ull

Litur

Blandað

Stærð

145 x 145 CM