H-310 safapressan er af nýjustu kynslóð “slowjuicer” véla sem þarf hvorki að skera niður hráefnið né ýta því í gegn. Þú einfaldlega fyllir könnuna af gómsætu grænmeti og/eða ávöxtum og setur í gang. Í botni könnunnar er blað sem brytjar niður og leiðir hráefnið niður að sniglinum. Snigillinn sem pressar hráefnið snýst eingöngu 43 snúninga á mínútu, en kosturinn við hæga pressun er sú að næringarefnin haldast í safanum og úr verður minna hrat. Nýstárleg hönnunin á síunni auðveldar þrif til muna.
Það er bæði hægt að setja ávextina/grænmetið í könnuna og láta vélina vinna eða nota gatið á lokinu til þess að bæta við í safann smátt og smátt. Í stað sigtis er sía í könnunni sjálfri sem sér til þess að hver dropi sé nýttur. H-310 safapressurnar eru nettar en ekki síður glæsileg tæki sem taka sig vel út í eldhúsinu.
Snúningshraði vélarinnar er 43 rpm og hún er 150W. Vélin getur pressað allt að 220 ml hverju sinni og er mjög auðvelt að taka hana í sundur og þrífa. Þær henta vel fyrir þau sem vilja pressa safa í eitt til tvö glös og vera snögg að skola og ganga frá.
Safapressunni fylgja ílát fyrir hratið, bursti, uppskriftabók og leiðarvísir. Hurom veitir 10 ára ábyrgð á mótor.