Á lager

Uppáhalds skrælarinn okkar er líka sá einfaldasti.  Blaðið sjálft er úr kolastáli (carbon steel) og bítur afar vel, blaðið er laust og aðlagar sig því vel að yfirborði þess verið er að flysja.
Umgjörin er úr ryðfríu stáli og fer einkar vel í hendi, dældirnar passa fyrir fingurna sem gefur öruggt grip og eykur öryggi og skrælarinn hentar jafn vel fyrir örv- og rétthenta.  Við endann á skrælaranum er lítið hak til að skafa upp augu og lítil óhreinindi í yfirborði þess sem verið er að skræla.  Umgjörðina er líka hægt að nota til að skafa innan úr hýði ávaxta, s.s. þegar unnið er með lárperur.
Við mælum með handþvotti því blaðið er ekki ryðfrítt.

Efniviður

Járn

,

Stál

Litur

Stál

Stærð

11 x 6,5 CM